Leikskólataskan

Þar sem börnin fara nær daglega út, þurfa fötin að vera í samræmi við veður hverju sinni. Í leikskólanum eru börnin að fást við ýmiskonar efnivið og geta því hæglega óhreinkað föt sín.

Nauðsynlegt er að hafa aukaföt í töskunni ef einhver óhöpp verða, hér fyrir neðan er listi yfir það sem þarf að vera í töskunni:

Munið að merkja fatnað barnanna vel.

Vel merkt föt skila sér betur til eigandans

Það sem þarf að vera í töskunni:

  • Nærbolur
  • Nærbuxur 2 stk
  • Tvenna sokka
  • Sokkabuxur ( gammosíur)
  • Auka buxur
  • Auka peysa
  • 1 þykk ullar- eða flíspeysa
  • Tvennir vettlingar
  • Ullarsokkar ( yfir veturinn)
  • Kuldagalli (yfir veturinn)
  • Pollagalli
  • Skór
  • Stígvél

 Þegar verið er að venja börn af bleyju þarf að sjálfsögðu að vera mun meira af aukafötum.

Rögn er fyrirtæki sem útbýr nafnaborða og merki til þess að merkja fatnað. Hægt er að panta og ganga frá greiðslu á netinu og sent heim. slóðin er http://www.rogn.is.