Gullmolar
Nýjar strípur
Kennari var nýkomin úr strípum og klippingu þegar ein lítil dama spyr hvort hún hafði verið að „sparsla „á sér hárið.
„Sjáðu ég er með límblóm“ Ein sem var með Gleym mér ei, á peysunni
„sjáðu ég er með límblóm“ ein sem var með Gleym mér ei á peysunni.
Mikki mús
Við matarborðið biður Gunna um að henni sé rétt kartöflumúsin . Gunna segir: Má ég fá Mikka mús :O)
Plokkflautan
Börnin eru að borða hádegismatinn, plokkfiskur í matinn, og umræður um söng og hljóðfæri. Gunna segir þá „Ég á svona plokkflautu heima :O)“