Gullmolar
Gullkorn dagsins
„Ég er með sólarhring“
3 ára drengur sem var að leika sér með dótahring
Ég er læs !
Ég ætla að lesa þessa bók og ég ætla að lesa hana talandi. Ég er búin að læra að lesa talandi.
Missti tönn
Einn fimm ára sagði „Ég var sleginn í ennið og þá losnaði tönnin“
Hélt að ég væri tyggjó !
Einn drengur var bitinn í höndina, þegar hann var búinn að gráta svolítið, þá sagði hann „Hann hélt að ég væri tyggjó“
Nýjar strípur
Kennari var nýkomin úr strípum og klippingu þegar ein lítil dama spyr hvort hún hafði verið að „sparsla „á sér hárið.