Sérfræðiþjónusta

Sérfræðingar og sérkennsla í leikskólanum Bergheimum.

Talmeinafræðingur;  Anna Jórunn Stefánsdóttir talmeinafræðingur kemur til okkar einu sinni í mánuði allt skólaárið. Hún sér um greiningu og ráðgjöf vegna málörvunar barnanna.

Sálfræðingur;  Wilhelm Norðfjörð sálfræðingur kemur til okkar eftir þörfum og ástæðum hverju sinni.

Sérkennsla í Bergheimum er í höndum og undir stjórn Ástu Pálmadóttur sérkennslustjóra, milliganga og umsóknir eftir sérfræðiþjónustu fara í gegn um sérkennslustjóra. Foreldrar þurfa að undirrita leyfi þess efnis að barnið fari í sérstakt mat hjá sérfræðingi og leikskólinn gerir þá kröfu að geta krafist þess að barnið fari í sjónpróf og heyrnarmælingu ef um sérkennslu er að ræða.

Öll börn sem eru með fæðuóþol, ofnæmi eða önnur veikindi þurfa að koma með vottorð þess efnis frá sérfræðingi, sé það ekki gert er ekki hægt að verða við óskum um sérfæði og annað slíkt.

Samstarf er við heilsugæslu um þroskapróf á yngri börnunum en foreldrum er gefinn kostur á að láta taka það í leikskólanum. Hjúkrunarfræðingur kemur í leikskólann og vinnur prófið í samvinnu við sérkennslustjóra.