• Gullmolinn

    Ég ætla að lesa þessa bók og ég ætla að lesa hana talandi.  Ég er búin að læra að lesa talandi.

Duglegir drengir

20. janúar, 2012

Í dag komu þessir duglegu drengir og buðu fram krafta sína við mokstur á leikskólalóðinni. Þeir kom vel útbúnir með skóflur og lítinn traktor

og mokuðu stíga að deildunum og hreinsuðu svolítið til á lóðinni okkar. Þetta eru þeir Þröstur Ægir, Þorkell Hugi og Birgir Logi allir eru þeir okkur vel kunnir enda gamlir nemendur leikskólans. Takk fyrir þetta strákar þið eruð dugnaðarforkar.