Fórum í íþróttahúsið í dag og fengum gesti þangað
Venju samkvæmt fórum við í íþróttahúsið í dag og fengum góða gesti en það voru nemendur úr tónlistarskólanum ásamt kennara sínum, Ásu Berglindi. Það voru þau Arnór Daði sem spilaði tvö lög á kornett. Sigrún Elfa og Birta sem spiluðu á Trompet og Hekla Björg sem spilaði á horn. Þau komu í lok leikfimitímans og spiluðu nokkur lög, þökkum við þeim kærlega fyrir komuna.