• Gullmolinn

    Einn drengur var bitinn í höndina, þegar hann var búinn að gráta svolítið, þá sagði hann „Hann hélt að ég væri tyggjó“

2. febrúar, 2012

 

 

Febrúar fréttablað

 

Starfsmannamál

Í janúar kom Ingibjörg úr fæðingarorlofi og í kjölfarið fór Kim aftur í 50% stöðugildi fyrir hádegi og Herdís fór einnig í 50% stöðugildi en eftir hádegi.

 

Heimsókn úr tónlistarskólanum

Þann 19. janúar kom Ása Berglind með þau Arnór Daða sem spilaði á kornet, Sigrúnu Elfu og Birtu sem spiluðu á trompet, og Heklu Björgu sem spilaði á horn. Arnór Daði spilaði tvö lög, annað lagið hans var frumsamið. Stelpurnar spiluðu saman eitt lag og Ása Berglind spilaði með þeim á trommu. Þau komu í lok leikfimitímans í íþróttahúsið sem var skemmtileg tilbreyting og þökkum við þeim kærlega fyrir komuna.

Foreldraviðtalsdagur

Foreldraviðtalsdagurinn gekk vel, foreldrar komu í viðtal hjá leikskólakennurum á deild barnsins einnig tóku þeir viðhorfskönnun. Niðurstöður könnunarinnar koma fljótlega og verða þær birtar á heimasíðunni og í næsta fréttablaði.

 

Tannverndarvika

Tannverndarvikan 2012 hófst 29. janúar og stendur til og með 3. febrúar. Á heimasíðu Lýðheilsustöðvar http://www.lydheilsustod.is má finna ýmislegt sem viðkemur tönnum og tannhirðu, þar er m.a. sagt að mikilvægt er að börn fái aðstoð við að bursta tennurnar til 10 ára aldurs, bursta skal tennur tvisvar á dag, kvölds og morgna. Öll fjölskyldan getur notað sama tannkremið en yngri börn þurfa minna en sá fullorðni. Tannburstinn á að vera með þéttum, mjúkum hárum með nettan haus. Mælt er með notkun tannþráðs og á að byrja að nota hann þegar tennur barnsins snertast. Á vefsíðunni sjukra.is er hægt að sjá lista yfir tannlækna sem bjóða upp á ókeypis forvarnaskoðun/eftirlit fyrir börn 3, 6 og 12 ára. Í þessu eftirliti er m.a viðtal, fræðsla um matarræði, munnhirðu og annað er snertir tannvernd. Einnig er um að ræða skoðun, skráningu, hreinsun tanna og flúormeðferð fyrir alla hópana, auk röntgenmynda fyrir 12 ára hópinn.

Peta tannlæknir kemur til okkar í heimsókn 7. febrúar og ræðir við börnin um tannburstun og tannhirðu almennt.

 

Dagur leikskólans

Þann 6. febrúar er Dagur leikskólans, það eru hagsmunasamtök sem tengjast leikskólum, Menntamálaráðaneytið og Samband íslenskra sveitafélaga sem standa að þessum degi.  Markmiðið með þessum degi er að vekja athygli á þýðingu leikskóla fyrir börn og þeirri kennslu sem fram fer í leikskólum landsins.

 

1-1-2 dagurinn

1-1-2 dagurinn verður haldinn víða um land laugardaginn 11. febrúar næstkomandi. Þema dagsins er aðkoma venjulegs fólks að vettvangi slysa, veikinda og áfalla. Viðbragðsaðilar koma sjaldnast fyrstir á vettvang slíkra atburða. Oftast kemur venjulegur borgari fyrst að, tilkynnir um atburðinn og veitir fyrstu aðstoð. Þessi fyrstu viðbrögð geta skipt miklu um afdrif fólks og hvernig til tekst með björgun.

Þess vegna er mikilvægt að sem flestir kunni skyndihjálp og treysti sér til að veita hana þegar á reynir. Þennan dag förum við yfir með börnunum  símanúmerið 112 og leggjum áherslu það er 1-1-2 en ekki 112.

 

 

Öskudagur

Öskudagur er 22. febrúar það er hefð fyrir því að börn og starfsfólk mæta í grímubúningum og haldið er ball í íþróttahúsinu á milli kl. 10 og 11.

 

Vikan 1.-3. febrúar

2. febrúar. Leikfimi í íþróttahúsinu, nauðsynlegt að börnin séu í þægilegum fatnaði og séu mætt fyrir kl. 9.30

3. febrúar. Hvítur litadagur þá koma allir í eða með eitthvað hvítt á sér.

3. febrúar. Söngstund inn í sal þar sem allar deildir koma saman og syngja.

3. febrúar. Dagur stærðfræðinnar.

Vikan 6.-10. febrúar

6. febrúar. Dagur leikskólans.

8. febrúar. Álfaheimar fara í heimsókn á 9una kl. 13.15.

9. febrúar. Leikfimi í íþróttahúsinu, nauðsynlegt að börnin séu í þægilegum fatnaði og séu mætt fyrir kl. 9.30

10. febrúar. Rugldagur, þá er opið á milli deilda kl. 10-11 og fara þá börnin á milli að vild.

10. febrúar. 1-1-2 dagurinn er laugardaginn 11. feb. og í tilefni hans munum við ræða við börnin og fræða þau um neyðarlínuna.

Vikan 13.-17. febrúar

13. febrúar. Hulduheimar fá heimsókn frá félagsstarfi eldriborgara.

16. febrúar. Leikfimi í íþróttahúsinu, nauðsynlegt að börnin séu í þægilegum fatnaði og séu mætt fyrir kl. 9.30

17. febrúar. Söngstund inn í sal þar sem allar deildir koma saman og syngja, dagmæður koma í heimsókn.

Vikan 20.-24. febrúar

20. febrúar. Bolludagur, boðið verður upp á bollur í leikskólanum.

21. febrúar. Sprengidagur, boðið verður upp á saltkjöt og baunir í hádeginu.

22. febrúar. Öskudagur, ball verður í íþróttahúsinu og allir mæta í grímubúningi.

23. febrúar. Leikfimi í íþróttahúsinu, nauðsynlegt að börnin séu í þægilegum fatnaði og séu mætt fyrir kl. 9.30

24. febrúar. Söngstund inn í sal þar sem allar deildar koma saman og syngja

 

Með kveðju

Elsa aðstoðarleikskólastjóri