Fréttabréf í janúar
Janúar fréttablaðið
Kæru foreldrar gleðilegt nýtt ár og takk fyrir samstarfið á liðnu ári.
Tónlistarskólinn
Á jólaballinu 12. desember spiluðu nokkrir nemendur tónlistarskólans undir söng og dansi og einnig voru 4 söngkonur sem leiddu sönginn, þökkum við þeim kærlega fyrir. Foreldrafélagið bauð upp á leiksýninguna Pönnukakan hennar Grýlu, sýningin er brúðusýning og voru börnin alveg heilluð af henni og sátu stillt og prúð og horfðu á.
Kirkjuferð
Farið var í kirkjuna með Hulduheima, Tröllaheima og eldri börnin af Dvergaheimum og Álfaheimum. Vegna veðurs og slæmrar færðar var ekki farið með yngri börnin en þau horfðu á myndband og boðið var upp á poppkorn.
Foreldraviðtalsdagur
24. janúar verður foreldraviðtalsdagur og er leikskólinn lokaður. Þegar nær dregur fá foreldrar viðtalstíma hjá deildarstjóra eða kennara deildarinnar.
Vikan 2.-6. janúar
4. jan. leikfimi í íþróttahúsinu, nauðsynlegt að börnin mæti í þægilegum fatnaði og séu mætt fyrir kl 9.30.
6. jan. blár litadagur þá koma allir í eða með eitthvað rautt á sér
6. jan. söngstund inn í sal þar sem allar deildar koma saman og syngja
Vikan 9.-13. janúar
10. jan. Hulduheimar og Tröllaheimar fara í heimsókn á 9una.
12. jan. leikfimi í íþróttahúsinu, nauðsynlegt að börnin mæti í þægilegum fatnaði og séu mætt fyrir kl 9.30.
13. jan. rugldagur þá er allur leikskólinn opinn milli kl 10-11 og börnin mega fara á milli deilda
Vikan 16.-20. janúar
19. jan. leikfimi í íþróttahúsinu, nauðsynlegt að börnin mæti í þægilegum fatnaði og séu mætt fyrir kl 9.30.
20. jan. Bóndadagur, börnin fá þorramat í hádeginu.
20. jan. söngstund inn í sal þar sem allar deildar hittast og syngja saman, dagmæður koma í heimsókn.
Vikan 23.-27. janúar
24. jan. Foreldraviðtalsdagur, leikskólinn er lokaður.
26. jan. leikfimi í íþróttahúsinu, nauðsynlegt að börnin mæti í þægilegum fatnaði og séu mætt fyrir kl 9.30.
27. jan. söngstund inn í sal þar sem allar deildar hittast og syngja saman. Dvergaheimar eru með uppákomu.
Kveðja
Elsa aðstoðarleikskólastjóri