Hulduheimar

Hulduheimar er deild fyrir 5-6 ára börn eða elsta árgang leikskólans. Deildin er staðsett í einni kennslustofu grunnskólans. Starfsmenn Hulduheima eru 4, 3 hópstjórar og 1 afleysing. Við byggjum áfram á því að efla sjálfstæði, frumkvæði og að börnin bjargi sér sjálf við daglegar þarfir og aðstæður. Einnig leggjum við áherslu á lífsleikni og kennum börnunum að vera færari í takast á við aðstæður sem hleypa tilfinningum þeirra í uppnám s.s. reiði, gleði, sorg o.sv.fr. Deildin er í samstarfi við grunnskólann þar sem þau fá þjálfun í því að takast á vð þau verkefni sem bíða þeirra er þau hefja grunnskólagönguna. Útivist er stór þáttur í starfi deildarinnar og reynum við að nota námsefnið úti ef veður leyfir hvort sem er vetur eða sumar. Frjáls leikur er stór þáttur í lífi barnanna og er lögð mikil áhersla á hann, reynum eins lítil inngrip og hæg er. aðaláhersla okkar er samt sú að „hafa gaman saman“

Starfsfólk deildarinnar

  • Helena Helgadóttir, leikskólakennari, deildarstjóri
  • Hólmfríður Garðarsdóttir, leiðbeinandi
  • Ásta Kristjana Jensdóttir, leikskólaliði
  • Sjöfn Ísaksdóttir, leikskólaliði