Álfaheimar
:
Á Álfaheimum erum 18 börn fædd 2008 – 2009, 5 drengir og 13 stúlkur. 5 börn eru af erlendum uppruna, þar af er eitt tvítyngt .
Lögð er áhersla á að börnin læri að bjarga sér sjálf og er þeim kennd sjálfsbjörg.
Þarfir yngstu barnanna eru að mörgu leiti aðrar en þeirra eldri, þau hafa meiri þörf fyrir líkamlega umhyggju, stöðugleika, öryggi og meiri einstaklingsumhyggju.
Í starfinu með yngstu börnunum er lögð áhersla á leikinn. Frjálsi leikurinn er ríkjandi en ákveðnar reglur gilda þó sem þau læra að fara eftir. Hver dagur hefur sinn fasta ramma sem börnin eru fljót að venjast og finna sig örugg í.
Yfir vetrartímann vinnum við samkvæmt gildandi stundaskrá sem má sjá á heimasíðunni og á sumrin færist starfið mun meira út þar sem sumarskipulag miðast af mikilli útiveru.
Starfsfólk deildarinnar:
- Hafdís Þóra Ragnarsdóttir, leikskólakennari, deildarstjóri
- Ingveldur Þorbjörnsdóttir, leiðbeinandi
- Svala Ósk Sævarsdóttir, leikskólaliði
- Guðríður Anna Sveinsdóttir, leikskólakennari
- Helena Jóhannsdóttir, leikskólakennari í fæðingarorlofi
